06.05.2007 21:22:39 / Sigga Lóa
ja hérna hér...ég var búin að steingleyma þessari síðu...sé samt
að það eru enn einhverjir sem skoða þetta rugl...
Nú eru stóruskógarbúar orðnir ansi fáir..2 að ég held ég alveg
örugglega...húrra fyrir þeim!!!
»
23.11.2006 22:56:21 / Sigga Lóa
name that song and you will win....
Sumarbústaðarparadís í 9 mánuði....
ath. ferðin er aðeins yfir
hávetrartíma...
innifalið er: eldhúsbúnaður,
frá 1915, leðursófasett, hannaður fyrir fólk sem þarf virkilega á bakstrekkingu að
halda, sem sagt pintingarsófi, Prinsessu hjónarúm,
ath að aðeins dvergar eða hálf manneskja kems
fyrir í rúmunum, einnig er líklegt að alvarleg og varanleg
bakmeiðsl hljótast af langtima svefni í þeim.
og síðast en ekki
síst....Heitur pottur þurfið
sjálf að þrífa, mygla og mosi myndast á tveggja daga
fresti=þrífa þarf annan hvern dag og potturinn fer ekki undir
45 gráður á Celsius...
Jæja bara eitt eftir....búbbsíbúbb..gangi ykkur vel...
»
08.11.2006 15:43:19 / Emma
Jæja, nú er ég búin að búa til pláss fyrir slúður.
Mér þykir afskaplega leitt að geta ekki riðið á vaðið en ég fór
heim áður en allir urðu nógu fullir til að gera eitthvað
skemmtilegt.
Hringið samt í mig ef þið viljið vita hvernig Over the Hedge er.
(sko byrjunin, ég sofnaði frekar snemma....)
Takk og bless
»
08.11.2006 10:42:09 / Berglind
Er þetta rétt sem maður er að heyra frá hátíðarkvöldverði HHS???
Steini???
Ég panta sjóv!!! c",)
»
31.10.2006 14:03:48 / Tryggvi
Þetta er Mikki Stóru-skógar refur!
Refir lifa aðalega á rusli. Þeim þykir það sérstaklega gott ruslið
hans Þorsteins. Refir eru eina vilta spenndýrið á Íslandi og lifa í
nánd við sumarbústaði og hafa nýlegar rannsóknir sýnt að þeir
fjölga hratt þar sem mikið er um rusl. Kvendýrið er kallað tófa eða
læða og karldýrið steggur eða refur. Afkvæmi skepnunnar eru
yrðlingar. Ég vil biðja ykkur ölla að gefa vini okkar, lukkudýri
Stóru-skóga bein eða eitthvað annað gott að éta nú þegar frostið
sækir að okkur með slíkum látum. Elskum þá sem eru okkur eru
næstir, elskum refinn.
Kveðja Tryggvi Rafn.
»
30.10.2006 23:57:54 / Sigga Lóa
jæja snúllur ætlar einhver á hátíðarkvöldverð HHS-inga þann
7.nóvember..?!?
»
27.10.2006 14:13:09 / Emma
Ekkert merkilegt um það að segja svo sem, fannst bara svo
súrt að hafa gamlan boðsmiða efst á blaði. Ég skora á alla að
skrifa eitthvað skemmtilegt um helgina. Sá sem skrifar
skemmtilegasta fær ís frá mér, keppnin stendur fram á
sunnudagsmiðnætti.
Koma svoooooooo
»
23.10.2006 12:31:59 / Emma
Kæru vinir.
Miðvikudaginn 25. október 2006 verður haldið örlítið teiti að
Stóruskógum 13 í Borgarbyggð. Þar mun Þorsteinn Kristófer
Ásgrímsson Melén bjóða gestum og gangandi upp á ýmsar kræsingar á
borð við kökur, mjólk og gos.
Allir eru velkomnir, bæði brottfluttir sem og staðfastir og
heimakærir íbúar svæðisins.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest,
f.h Þorsteins Kristófers Ásgrímssonar Melén
Emma Björg Eyjólfsdóttir, ritari.
»
20.10.2006 14:37:03 / Emma
Gleðilega helgi Stóruskógabúar nær og fjær. Líka þeir sem
hafa flutt í burtu þó ég hafi verið að hugsa um að bannfæra þá.
Ég mun halda á vit þeirra Kants og Platóns um helgina, vona að sem
fæstir þurfi að gera slíkt hið sama!
Guð veri með ykkur, hvort sem þið teljið hann vera anda eða efni.
Amen
»
16.10.2006 23:00:56 / Sigga Lóa
Ello mates..Ég var að spá í að halda dulítið kökuboð
fimmtudaginn 19.október í tilefni þess að ég er að eldast...Væri
gaman að sjá ykkur sem flest um 8 hálf 9 (um kvöldið) í
bústað 16...
Kveðja Sigga Lóa
»
13.10.2006 19:19:41 / Tryggvi
Þá er um að gera að smala saman mannskap og taka í spil.
Er einhver áhugi á því að vera með?
Endilega kíkkið í bústað 13.
Kveðja Tryggvi Rafn
»
13.10.2006 10:19:18 / Emma
Í dag er föstudagur
Í dag er gaman
Á föstudögum er gaman
Rétt upp hend sem ætlar að vera á höfuðborgarsvæðinu um
helgina!
»
12.10.2006 10:52:13 / Sigga Lóa
Fimmtudagur til skemmtunar..
Hvernig er stemmningin fyirr kaffihúsinu í kvöld? Ætlar einhver?

»
10.10.2006 12:10:39 / Sigga Lóa
Villi-Rollurnar eru á ferð!!..Fólk er vinsamlegast beðið um að
halda sig innandyra...
Sérstaklega að passa sig á svartasauðinum...
»
09.10.2006 20:27:57 / Berglind
»
Síður:
1 2 3 ...
5